Frábært auglýsingapláss ef þú vilt vera sjáanlegur.

20.10.09
Íslensk Kjötsúpa

Kjötsúpa er hin eina sanna íslenska súpa en það þýðir ekki að allar uppskriftirnar séu eins. Margir eiga uppskrift frá mömmu eða ömmu en hér er dæmigerð íslensk kjötsúpa. Munið svo að það er gott að gera stóran skammt, mörgum finnst súpan best þegar hún er hituð upp í annað eða þriðja sinn. Verði ykkur að góðu!

 

Íslensk kjötsúpa

1 kg súpukjöt
1.8 l vatn
1 msk salt, eða eftir smekk
1-2 msk súpujurtir
0.5 laukur, saxaður smátt
500 g gulrófur
500 g kartöflur
250 g gulrætur
100 g hvítkál (má sleppa)
nýmalaður pipar

1 1/2 dl hrísgrjón

1/2 dl haframjöl (má sleppa)


Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan sett í pott, vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Froða fleytt ofan af, saltað og súpujurtum,  lauk og hrísgrjónum hrært saman við. Soðið í um 40 mínútur. Á meðan eru gulrófurnar afhýddar og skornar í bita, kartöflurnar afhýddar og skornar í helminga eða fjórðunga, ef þær eru stórar, og gulræturnar skafnar og skornar í bita. Sett út í og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar ræmur, sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er meyrt. Smakkað og bragðbætt með salti og pipar, ef þarf. Kjötið er ýmist borið fram í súpunni eða með henni á sérstöku fati.
Ýmislegt annað grænmeti má hafa í súpuna, svo sem blómkál, sellerí eða grænkál. Oft er grænmetið haft í stærri bitum en hér er gert og soðið lengur en margir fella sig illa við bragðið af gulrófnasoðinu og því er e.t.v. best að sjóða rófurnar sér í potti og jafnvel kálið einnig.

 

Uppskrift fengin úr Gestgjafanum

 

Njótið,

Veisla.is

 

20.10.09
Samsetning matar og víns.
Þegar matur er mjög Fituríkur er gott að vínið innbyrði meira...
20.10.09
Íslensk Kjötsúpa
Kjötsúpa er hin eina sanna íslenska súpa en það...

KRAFTMIKIÐ AUGLÝSINGAPLÁSS !!!