Ath. þjónustuflokkar neðst á síðunni.
Við verjum stórum hluta barnæskunnar með bekkjarfélögum okkar og flestir fara síðan í menntaskóla og jafnvel háskóla þar á eftir. Á þessum árum eignast margir góða vinahópa og sumir halda tengslin það sem eftir er ævinnar. þrátt fyrir að tengslin við gömlu skólafélagana hafi verið sterk á sínum tíma, tapast þau niður eftir því sem árin líða þar sem fólk velur ólíkar leiðir í lífinu. Að hitta gömlu bekkjarsystkini sín kannski 10 árum eftir að hafa hitt þau síðast er ómetanleg skemmtun.
Til að einfalda málin höfum við hjá Veisla.is sett alla þá aðila sem við teljum að geti aðstoðað við undirbúninginn undir sama hatt.
Þjónustuskráin okkar hér fyrir neðan auðveldar þér að komast í samband við þá aðila sem sérhæfa sig í mat og þjónustu sem nýtist þér við undirbúninginn.




